Símtöl
Hringt er úr tækinu á venjulegan hátt
þegar höfuðtólið er tengt við það.
Til að hringja aftur í númerið sem
síðast var hringt í (ef tækið styður
þennan möguleika með höfuðtólinu)
er ýtt tvisvar á svartakkann þegar
ekkert símtal er í gangi.
Til að gera raddhringingu virka
(ef tækið styður þennan möguleika
með höfuðtólinu) er svartakkanum
haldið inni í um tvær sekúndur þegar
ekkert símtal er í gangi. Farðu eftir
leiðbeiningunum í notendahandbók
tækisins.
Ýtt er á svartakkann til að svara
símtali eða leggja á. Símtali er hafnað
með því að ýta tvisvar sinnum
á þennan takka.
Til að flytja símtal úr höfuðtólinu yfir
í samhæft tæki er svartakkanum
haldið niðri í um 2 sekúndur eða slökkt
á höfuðtólinu. Til að flytja símtalið
aftur í höfuðtólið er svartakkanum
ÍSLENSKA
haldið niðri í um 2 sekúndur eða kveikt
á höfuðtólinu.