Nokia Bluetooth Headset BH 106 - Rafhlaðan hlaðin

background image

Rafhlaðan hlaðin

Áður en rafhlaðan er hlaðin skaltu lesa
vandlega „Upplýsingar um rafhlöðu og
hleðslutæki“.

Viðvörun: Aðeins skal nota
hleðslutæki sem Nokia hefur
samþykkt til notkunar með

þessari tilteknu gerð. Ef notaðar eru aðrar
gerðir gæti öll ábyrgð og samþykki fallið
niður og slíkri notkun getur fylgt hætta.

Þegar aukabúnaður er tekinn úr
sambandi skal taka í klóna, ekki snúruna.

1. Stingdu hleðslutækinu í samband

við innstungu.

2. Tengdu snúru hleðslutækisins við

tengið. Rauða stöðuljósið logar
meðan á hleðslu stendur. Það getur
tekið allt að 2 klukkustundir að
hlaða rafhlöðuna að fullu.

3. Græna stöðuljósið logar þegar

rafhlaðan er fullhlaðin.
Hleðslutækið er fyrst tekið úr
sambandi við höfuðtólið, síðan úr
rafmagnsinnstungunni.

Fullhlaðin rafhlaða endist í allt að
5 klukkustundir og 30 mínútur í tali
eða allt að 120 klukkustundir
í biðstöðu.

background image

ÍSLENSKA

Staða rafhlöðunnar þegar höfuðtólið
er ekki tengt við hleðslutæki er
könnuð með því að ýta á rofann. Ef
stöðuljósið er grænt er rafhlaðan
nægilega hlaðin. Ef ljósið er gult gæti
þurft að hlaða rafhlöðuna bráðlega. Ef
ljósið er rautt skaltu hlaða rafhlöðuna.

Þegar rafhlöðuhleðslan er lítil gefur
höfuðtólið frá sér tón á 5 mínútna
fresti og rauða stöðuljósið blikkar.